Sugarpumpkin
Mínar síður
18.09.2008 13:02:02 / heida

Charlottes web


Ætli það sé ekki kominn tími á að þrífa bílinn þegar það maður finnur kóngulóarvef í afturrúðunni??


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 13:01:26 / heida

Beskidt


Brjálað rok, allt að fjúka, 40 m/s. Alltaf gaman að taka á móti haustinu, iggoss?

Þá er einmitt ágætt að skella sér til Boston þar sem er sól og 20 stiga hiti! Eftir 8 daga mun ég vera á Newbury street eða einhverju álíka, wining and dining with the girls. Sældarlíf!

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 20:03:27 / heida

Friend ship


Þessi facebook faraldur hefur nú ekki náð almennilega til mín þannig séð. Jú jú, alveg sniðugt að finna gamla vini og kunningja en þetta nýtist mér nú samt sem áður ekki mikið. Ekki nóg með það að maður þarf að fara í gengum allskonar fáranlegar spurningar og blaaa til þess að svara spurninga könnun eða senda blóm á einhvern, að þá er ég alltaf að fá bréf og vina fyrirspurnir frá einhverjum aröbum sem heita til dæmis, Omar Moudni eða Mohamed Raheeb. Þetta er það nýjasta kveðjan sem ég hef fengið:

hi i check my e mail box and say a beautifull girl with a beautifull smill and make my mind to write to you just to know if you are interst to my friend ship i will be glad to hear about you as soon as possibe

Þetta segir nú bara allt sem þarf...nei elskan, ég hef ekki áhuga á vina skipinu þínu!




» 4 hafa sagt sína skoðun

16.07.2008 15:29:42 / heida

Spennan eykst


En aðallega um það hvort við fáum rigningu eða ekki á LungA. Allir að krossa fingur!

Leiðinlegur dagur í vinnunni. Er með túrverki og engir ítalar að tipsa eða þjóðverjar að segjast elska mann, eins og í gær. Það munar öllu að fá pening og ástarjátningar get ég sagt ykkur!

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 11:05:42 / heida

Ábending

Það kom ábending um hvað hefði átt að vera með í síðustu færslu og hef ég ákveðið að tileinka þessum pósti henni Móu. Vona að þú komist með!! :)

LUNGA verður tekið með stæl um næstu helgi! Bara týpiskt fyrir mig að helv... veðrið á að vera gott á öllu landinu, NEMA á Seyðisfirði og nágrenni! Böööö Jæja, þetta breytis á hverjum degi, so here´s hoping! 
Dagskráin er sú að ég, Helga, Súsanna, vinkona hennar og vonandi Móa(!) leggjum af stað fimmtudag og tjöldum á Skaftafelli. Svo keyrum við restina á föstudag (Helga er með kílómetrafjöldann allan á hreinu) og eyðum helginni á Seyðó í rugl og vitleysu og auðvitað e-ð gáfulegt líka.
Á sunnudag keyrum við norðurleiðina heim. How about that, Hringurinn tekinn á no time! HA!


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 00:43:58 / heida

Atburðir undanfarinna daga/vikna/mánaða:


*Mamma og pabbi komu í heimsókn til Árósa, fengu loksins að sjá hvar ég bý!
*Skólinn búinn, gékk vel - Aldrei meir Gellerup eða hópavinna!!!
*Til hamingju til nýútskrifuðu arkitektana: Siggu, Söru, Sigrúnu, Gunna og Dodda!
*Komin til Íslands, gott gott gott!
*Mads kom yfir helgi til ISL, hann ætlar að flytja hingað í mánuð í haust!
*Fórum í brúðkaup, gaman gaman, til hamingju Auður og Brynjar!
*Djamm föstudag, 30s afmæli hjá Sillu og party laugardag: fullt af áfengi, músik, rugli, dansi...
*Byrjuð að vinna á Hótel Frón, orðin rótgróin á essu pleisi.
*Er að fara í hvalaskoðunarferð/party með víni, mat, DJ og hvölum á morgun, geri aðrir betur!
*Fer að skoða nýja tónlistarhúsið á fimmtudaginn, öfund anyone??
*Komst að því hjá Sillu að heimurinn minnkar stanslaust.
*Mér finnst Færeyskur harðfiskur rosalega góður.
*Lúkas varð eins árs 4.júli, til hamingju!!!
*Fékk loksins borgað frá LÍN, kom út í 60þús. plús, jubbí!
*Held að ég verði komin í skóstærð 42 snart8|
*Undur og stórmerki! Fór út að hlaupa í gær....og í dag er ég hölt...
*Þorgeir er fallegasta barn í heimi, no offence til allra hinna...!
*Dettur ekkert í hug fyrir síðustu stjörnuna en tímdi ekki að stroka hana út...


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 18:33:41 / heida

Falalalaaaaa

Oh hvað ég elska músik mikið. Alltaf í byrjun mánaðarins þegar námslánin koma inn ;) þá gef ég mér 1 - 5 nýja/gamla geisladiska. Í dag keypti ég nýjasta Cat Power og Talking Heads Collection. Mmmm, fæ fiðrildi í magann.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 11:54:19 / heida

Heiða to the rescue

 

Sá stóra ruslatunnu hendast á bíl hérna í planinu í morgun og fór náttúrulega út með skikkjuna og Batman grímuna og bjargaði málunum. Bíllinn órispaður og tunnan á sínum stað. 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 10:04:15 / heida

BA

Já gott fólk, thá er ég komin med bachelor grádu í arkitektúr. Til lukku ég! Jubbííí:)

Thetta er nú búid ad vera meira stressid, svefnlausar nætur, mikid ad gera, svitakøst og ennthá meira stress! En thetta er loksins búid, nú getur madur andad rólega og thá hætti ég kannski líka ad svitna endalaust....


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 23:03:53 / heida

Multikulturell weekend

Vorum að renna í hlaðið frá Kolding. Náðum að gera margt þessa helgi: Trapholt museum, versla 2 kjóla og skart, borða homemade sushi (jummi!), rokka með guitar hero (by the way, totally sold, ætla svo að kaupa gítar við WII´inn okkar - þetta er MEGA gaman!) og spila tennis á WII, trúnó með Jakúp, djamma með fullt af færeyingum, dönum, einni búlgarskri og og einum kinesisk, lærði margt um kína og þar borðar fólk í alvörunni hunda sem eru bæði ræktaðir á hunda-bóndabæjum og stolnir úti á götu!  jAkk :S Svo eru svínaeyru rosalega gott "snakk" með bjór... Ég held mig frekar við snakk og saltstangir.

Nú tekur við 24 hour model making næstu 2 daga OG svo kritik á miðv.dag....


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 22:47:56 / heida

Laugardagslögin

Áfram Dr.Spock með laginu Hvar ertu nú!

Þetta blog virkar aldrei almennilega svo linkurinn að laginu liggur hér fyrir neðan, gjörið svo vel....

http://http.ruv.straumar.is/static.ruv.is/evrovision/laugardagslogin/hvarertunu.wma

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 22:30:55 / heida

Lessubolti..?

Var að lesa grein um að Sharon Stone væri farin að hafa áhuga á sama kyni. Segist fíla "karlmannlegar konur og að horfa á íþróttagreinar sem samkynhneigðar konur stunda".

Svei mér, ef ég væri skotin í stelpum myndi ég laðasta að kvenlegum konum. Og hvað er eiginlega samkynhneygð íþróttagrein? Reyndar á einu af "húmorkvöldunum" okkar Soffíu Tinnu um daginn varð til hommajóga, ég gæti kannski stofnað lessubolta líka og boðið henni að taka þátt...?


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 22:07:09 / heida

Dúnsæng og öl

Föstudagskvöld, girls night in og ég ætti að vera að læra. EN hef það einum of gott hérna fyrir framan imbann, með Matthew McConaughey, nýju dúnsængina mína, bjór og snakk. Gæti það verið betra!? Já kannski en þokkalega ásættanlegt samt sem áður...


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 22:23:05 / heida

Print problemer

Jubbí, þá eru fyrstu skil búin! 3 x A0 plaköt komin í hendur skólans. Þó svo að Frederiksbjerg print hafi fokkað þeim upp, vantaði fullt af línum. Alveg týpiskt þar sem að í þetta skipti var ég búin í góðan tíma fyrir skil... Tókst bara að laga einn áður en ég þurfti að hoppa í taxa og beint niður í skóla, náði rétt svo að skila áður en sú sem tók við fór. Þetta var líka svona síðast. Kannski maður hætti að treysta á þetta lið þarna uppfrá... plús það að ég borgaði fuld pris...:(

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 17:36:01 / heida

Ég man enn lykilorðið !

Ótrúlegt miðað við hvað er langt síðan ég hef opnað þessa blessuðu síðu.

Auðvitað akkurat núna er mega stress og verkefnaskil eftir 1 1/2 sólarhring og þessvegna vel ég akkurat þessa stund til að endurkynnast síðunni minni.

Ég held ég fái bráðum sár á rassgatið, er búin að stija á sama stað í svo langan tíma. Kom heim 1.jan og er búin að fara 3svar útúr íbúðinni síðan. En verð að viðurkenna að það er bæði út af leti og skólavinnu... Get ekki beðið eftir að þetta rögl er yfirstaðið!

Er svo heppin að eiga mann sem nennir að elda fyrir mig. Hann er að gera lasagna núna með heimatilbúnu pasta! jummjumm

Gleðileg jól (um daginn) og Gott nýtt ár, gott fólk!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 27
Klukkan